Afsakið
25. júlí 2007 klukkan 22:46
Ég er ekkert búin að skirfa núna í allt of langan tíma. Það er mikið búið að gerast síðustu vikur, maður veit valla hvar maður á að byrja!
Listahópurinn minn frumsýndi leikritið SAGA með lögum úr todmobile. Hugmyndina að leikritinu fékk ég í fyrra og að sjá það loksins verða að veruleika var ótrulega gaman:) besta tilfinning í heimi.
Svo skrapp ég eina viku til Færeyja á G! festival sem var ótrulega gaman. Færeyjar er yndislegur staður, og fólkið ótrulega gott. vildi að ég hefði getað verið aðeins lengur bara. Kannski seinna.
En nú er ég komin aftur á klakkann og á eftir að vinna tvo daga með listahópinn og svo veit ég bara ekkert hvað ég á að gera af mér!?
any suggestions??
kv. domi
Myndataka - Sunna
05. júlí 2007 klukkan 16:20
Tók myndir í gær í góða veðrinu, Takk æðislega Stelpur fyrir daginn .. :)
Módel: Sunna
Stílisering: Ida
Förðun & Myndtaka: domi








fleiri myndir á flickr.com/photos/nikkamons
Módel: Sunna
Stílisering: Ida
Förðun & Myndtaka: domi








fleiri myndir á flickr.com/photos/nikkamons
hádegis pælingar
18. júní 2007 klukkan 12:36
Í vinnunni fyrir hádegi í dag lenti ég á spjalli við krakkana í hópnum mínum. (Þeir sem ekki vita það, þá er ég flokkstjóri Listahópsins í Hafnafirði. )
Umræðan var meðal annars , Goth tíska og fólk sem fylgir henni og svo stelpur sem taka þátt í fegurðarsamkeppnum. Þau voru greinilega með ákveðna staðalímynd um þessa hópa og það var mjög áhugavert að heyra þau tala um það. Til dæmis fannst sumum að Goth væri tengt athyglisýki og að fegurðarsamkeppnir væru fyrir heilalausar stelpur.
Mig langaði að segja margt við þau tengt þessu, en ég leyfi þeim að tala og hlustaði til að byrja með. Ég áttaði mig síðan að einu sinni var maður svona. Hugsaði svona- það er að segja .
En í dag , td. þegar ég geng niður laugaveginn þar sem maður sér margt og mjög mismunandi fólk, þá tek ég valla eftir því lengur hvernig fólk lítur út. Það kemur mér ekkert á óvart að sjá gothara eða bara einhver sem er klæddur öðruvísi en ég.. Tíska er tíska, og á Íslandi ríkir svo sannalega freedom of fashion að mínu mati. En svo eru alltaf einhverjir sem hneykslast að sjálfsögðu.
Mér finnst alltaf jafn skrítið þegar einhver gangrýnir klæðaburð minn. Eins og núna nýlega var ákveðin aðili sem fór að gangrýna fjólubláar leggings sem ég á. Hvað er að fjólubláum leggings? ....? ég bara skil það ekki :S. Mér finnst leggings þæginlegar og fjólublár litur fallegur. So whats the problem here?
Anywho, þetta er oft að koma fyrir mig, og ég hugsa alltaf: Sama hversu hallærislega mér fyndist einhver sem ég þekkji vera klæddur, þá mundi ég ALDREI fara að segja "gvuð...í hverju ertu?" mér finnst það frekar dónalegt. Á meðan mér finnst það flott sem ég er í, afhvejru ætti þér ekki að vera sama? og öfugt. Skilji þið mig.
Mér finnst líka eitt annað frekar óþæginlegt, og það er þegar fólk segir við mig "finnst þér (nafn) ekki búin að fitna?" hvað er málið með það? fólk fitnar og grennist. -Ég er lifandi dæmi um það ! ég rokka svo í þyngd að það er ekki fyndið og mér mundi ekki finnast það gaman að vita til þess að vinkonur minar væru geðveikt að tala um það.
Ég hef lennt í þvi að einhver spyr mig að þessu , semsagt "finnst þér ---- ekki búin að fitna?" og þá er kannski sá aðli að tala um mannsekju sem er miklu grennri en ég! halló? hvernig á mér þá að líða?...
Plús það... er ekki svo margt annað sem er hægt að tala um heldur en hvað þessi er ljótt klæddur eða hvað þessi er feitur eða eitthvað álíka?.
Ég er ALLS EKKI að segja að ég hafi ekki einhverntíman sagt "shit , hvað hún er mjó/feit!" eða eitthvað. Enda er ég líka að gangrýna sjálfan mig með þessu bloggi. En sumir eru svo sannarlega ýktari í þessum umræðum en aðrir. Við þurfum kannski bara að passa okkur við hvern maður er að tala þegar maður segjir ákveðna hluti, því það gæti farið fyrir brjóstið á manneskjuni sem maður er að tala við ..
breyttir tímar
11. júní 2007 klukkan 16:25
Fyrsti vinnu dagurinn minn var í dag . Ég er flokkstjóri listahópsins í Hafnarfirði. Sem er skemmtilegasta starf á jarðríki. Í dag voru inntökuviðtöl fyrir krakka sem voru að klára 10 bekk, en aðeins krakkar sem voru að klára 9 og 10 bekk geta sótt um. Svo eru inntökuviðtölin fyrir 9 bekk næsta mánudag. En á morgun byrja ég á fullt með krakkana sem komnir eru í hópinn , að undirbúa okkur fyrir 17 Júní, sem er næsta sunnudag! Við verðum með eitthvað sprell þann dag í hafnarfirði. gaman gaman!
Svo er maður bara að flytja í nýja húsið! Ég og ómar þrifum pottinn í fyrra dag og svo komu Andri og Begga í pottinn í gær , mega nice ! Þarna verður sko legið í sumar úff... sweeeeet ;D
ahh tölvan er að verða batteríslaus ! skrifa meira á eftir!
Myndir frá Made in Iceland Tískusýningunni
04. júní 2007 klukkan 14:12
My personal favorites:
STARKILLER


FORYNJA




AFTUR





STARKILLER


FORYNJA




AFTUR





vinsamlegast birtið ekki myndirnar annars staðar án þess að spurja mig um leyfi fyrst.
takk:)
Leti sunnudagur
03. júní 2007 klukkan 21:53

Ég er að deyja úr leti. og mér leiðist. mig langar í ís.
Gaman saman :)
31. maí 2007 klukkan 15:35
Kommentaðu með nafninu þínu og...
1. Ég segi þér eikkað handahófskennt um þig
2. Ég segi þér hvaða lag/mynd minnir mig á þig
3. Ég segi þér hvaða bragð minnir mig á þig
4 Ég segi þér fyrstu ljósu minninguna mína af þér
5. Ég segi þér á hvaða dýr þú minnir mig á
6. Ég spyr þig að einhverju sem ég hef velt lengi fyrir mér um þig
stal þessu af chica siðunni:)
www.blog.central.is/chica
VöFFLuR.
24. maí 2007 klukkan 18:39
okay...
mæli ekki með því að reyna að búa til Súkkulaði Vöfflur með því að setja kakó duft út í vöfflu deig... :S
það gengur ekki!
djöfull... mig langaði svo í súkkulaði vöfflur.. :´(
Trentemoller... vá!
20. maí 2007 klukkan 16:55
Ég og Ómar fórum á Trentemoller tónleikana sem voru á gauknum í gær. Við höfum sjalda skemmt okkur jafn vel! Hann er klikkaður Dj og ég hélt að hann ætlaði aldrei að stoppa ! Josephine var líka góð að hita upp fyrir hann , líkt og hún gerði þegar Booka Shade spilaði í byrjun ársins. Party Zone fær svaka plús frá mér fyrir að hafa haldið frábært party!
Einnig fá þeir sem hönnuðu lookið á nýja Gauknum stóran plús frá mér ! ÞAð er allt annað að sjá staðinn- gólfið niðri er geðveikt ég gat ekki hætt að horfa á það haha... Dansgólfið er semsagt með litlum ljósum í golfinu sem eru eins og stjörnur og tungl .
Svo má ekki reykja inn á staðnum sem er gott fyrir alla.. en það eru svalir á efri hæðinni þar sem hægt er að reykja .
En já aftur að Trente, hann var rosalegur og ég hélt að allt væri að verða vitlaust þegar hann tók What else is there, og Moan.
Svo hitti maður bókstaflega alla þarna ! allir í reykjavík sem eru að fýla electonic dance , voru þarna! Svo var líka mátulega mikið af fólki þannig að það var hægt að dansa án þess að finna andfýluna úr næsta manni..yuk. ÞAð var líka hópur af krökkum sem flaug sérstaklega hingað frá færeyjum til að fara á þessa tónleika, metnaður ;)
Annars er ég ekki að fara að djamma næstu helgi - bara taka því rólega . Trentmoller djammið dugar mér næstu vikurnar! það er lítið sem gæti toppað það...
LAufey! innilega til hamingju með allar Tíurnar ! :D glæsilegt hjá þér!
peace
domi
Kids with guns
19. maí 2007 klukkan 06:07
Hver er ykkar skoðun á því-
Börn sem leika sér með byssur,
dóta byssur, en samt sem áður "byssur" sem foreldra (ættingjar eða vinir )
kaupa handa börnum.
Mundiru kaupa byssu handa barninu þínu til að leika sér með?
-Ég hef oft pælt í þessu... á maður að leyfa börnunum sínum að leika sér með byssur? er byssuleikur saklaus leikur ? það var saklaus leikur eflaust .. en eru etta ekki breyttir tímar?
hvað finnst ykkur?
